Rabbi og Rúna Reyna við Reykjavík
27.09.2006 20:48:50 / heisig

www.olofvala.com

Jæja þá er nýja heimasíðan hennar Ólafar Völu komin í loftið. Við ætlum svo að blogga þar inni og koma því fréttir af okkur þar og sjáum við því engan tilgang í að halda þessari síðu uppi. Þannig að ef þið viljið fylgjast með okkur þá er bara að fara inn á http://www.olofvala.com ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 18:30:25 / heisig

Ólöf Vala

Hér skrifar ótrúlega stolt móðir sem fæddi litla prinsessu 13.september kl. 17:09. Litla snótin var 3880 gr. eða 15 og hálf mörk og 53 cm. Hún fékk strax nafnið Ólöf Vala sem er í höfuðið á ömmum hennar. Við litla fjölskyldan komum heim í gær og erum að læra að þekkja inn á hvort annað og kynnast betur. Daman er vær og góð og gerir lítið annað en að drekka og sofa en hún heldur foreldrum sínum samt vel við efnið.

Við þökkum allar kveðjurnar frá ykkur

P.s. Heimir er að forrita nýja síðu sem opnar von bráðar slóðin hennar er www.olofvala.com og þar verða myndir af lillunni.

Sigrún

» 26 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 20:30:47 / heisig

Biðin styttist

Þá eru einungis 10 dagar í settann dag hjá krílinu. Ég hef það samt á tilfinningunni að það komi eitthvað aðeins seinna. Hún er samt búin að fastskorða sig og bumban er farin að síga verulega.  Ég er búin að gera allt sem gera þarf, þvo föt, strauja og þrífa allt hátt og látt, þannig að það er ekki mikið sem liggur fyrir hjá mér nema að horfa á friends og sofa ;) Við fengum reyndar barnarúmið áðan og Heimir er núna að dunda sér við að setja það saman.

Hafið það gott þarna úti
Sigrún inni/svefnpúki 

» 20 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 12:46:05 / heisig

Eyrnabólga á gamalsaldri

Sit heima ein og yfirgefin með eyrnabólgu, hálsbólgu og kvef. Veit ekki hvað það á að þýða að fá eyrnabólgu á gamalsaldri. Ég var ekki svokallað eyrnabólgu barn þegar ég var lítil og hef bara aldrei fengið eyrnabólgu fyrr en núna. Þetta er svakalega vont, skil núna litlu börnin mikið vel sem eru með eyrnabólgu. Ég var líka eins og lítið barn í fyrrinótt og var alltaf að kveinka mér eitthvað við Heimi. Það endaði með því að hann fór og náði í verkjalyf handa mér til að ég gæti sofið. Svo fór ég út á heilsugæslu í gær alveg komin með nóg af þessum verkjum. Ég lenti á einhverjum ungum læknanema sem var ekki að þora að spyrja mig hvort að ég væri ólétt. HALLÓ ég hélt að það færi ekki á milli mála að ég væri ólétt enda komin 8 mánuði á leið. En svo spurði hann mig mjög lágt þú ert ólétt er það ekki. Ég játti því mjög hneykslanlega. En hann var sem sagt að spyrja mig að þessu vegna þess að óléttar konur mega helst ekki fá sýklalyf sem er oftast gefið við eyrnabólgu. Ég fékk í staðinn dropa í eyrun þannig að ég verð enn lengur að ná þessum fjanda úr mér. En það er þó skárra að vera með verki nokkrum dögum lengur heldur en að barnið mitt skaðist af einhverjum sýklalyfjum.

Sigrún sem á ótrúlega bágt :)



» 5 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 19:54:18 / heisig

Still alive

Við erum ennþá lifandi þó svo að þessi síða hafi verið hálfdauð í langan tíma. Helstu tíðindi af okkur eru þau að við erum flutt á Selfoss og búin að koma okkur ágætlega fyrir. Svo útskrifaðist ég sem uppeldis og menntunarfræðingur í júní við hátíðlega en langdregna athöfn. En aðalfréttirnar eru auðvitað að nú styttist óðfluga í fæðingu frumburðarins ekki nema 5 vikur. Ég á ekki nema eftir að vinna nema 1-2 vikur í viðbót og þá get ég klárað að græja allt áður en yndið kemur. Ég er reyndar búin að kaupa slatta af fötum og svo ætla mamma og pabbi að gefa okkur vagn og tengdó ætla að gefa okkur bílstól í bílinn. Ekki slæmt að eiga svona ömmur og afa ;) Þannig að ég á svo sem ekkert eftir að gera neitt rosalega mikið en ég fæ þó smá tíma til að fara á fullt í hreiðurgerð og hvíla mig.
Við erum ekki viss um hvort að við ætlum að hafa þessa síðu eftir að lillan fæðist, ætlum að opna síðu á barnalandi þar sem að vel valdir vinir og vandamenn fá tækifæri til að fylgjast með okkur. En við látum ykkur vita slóðina af henni síðar

Sigrún over and out að springa úr óléttu á lokasprettinum

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 16:17:17 / heisig

Sælar

Jæja sæl verið þið, ég ákvað að reyna að skrifa eitthvað hérna inn svona svo fólk viti að við erum á lífi. Svo þegar á hólminn er komið hef ég ekkert að segja, nema kannski það að nú er maður bara að vinna hjá Ístak og að sjá um ólétta konu þess á milli. Það má vart á milli sjá hvort er meiri vinna :lol: Hvað sem því líður þá styttist nú óðum í að við flytjum á Selfoss, íbúðin langt komin, og allt að smella. Sem sagt ekkert nema gleði á þessum bænum sem er vel.

Adios.............................Heimir


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 17:09:00 / heisig

Sumarið er tíminn.......

Ætli það sé hægt að segja að sumarið sé endanlega komið? Það er stór spurning vona bara það besta.  Hvað sem því líður þá er spennandi kostingahelgi liðin og ég er sátt við úrslit á sumum stöðum en ekki öðrum, ætla þó ekkert að tjá mig nánar um það. Ég vaknaði á slaginu níu á kostingardaginn því við ætluðum að kjósa snemma og drífa okkur austur fyrir fjall og vera þar um kvöldið. Þetta plan okkar varð hins vegar að engu því ég ældi, á gólfið nánar tiltekið og var svo með beinverki og hita allan daginn. Bara bömmer að vera svona veik, ég komst ekki einu sinni að kjósa :^) en það þýðir ekkert að fárast yfir því.  Annars er allt gott að frétta héðan úr Reykjavíkinni og nú styttist óðum í flutninganna.

Jæja læt þetta nægja í bili
Sigrún sem er að ná sér úr veikindum ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:39:28 / heisig

Lokavikan

Síðasta vikan mín í HÍ er hafin. Bara furðuleg tilfinning. Ég á bara eftir að laga BA-ritgerðina eitthvað smá og svo skila ég henni inn fyrir helgi. Svo er ég að klára aðra ritgerð sem ég er mjög langt komin með og skila henni líka inn fyrir helgi. Á mánudaginn er það svo bara vinna. Heimir er búinn með eitt próf og á tvö eftir eitt á laugardag og svo annað á mánudag og svo tekur vinna við hjá honum eins og hjá mér.

Það var svo gott veður í gær að við ákváðum að taka okkur smá frí frá lærdómi og skipta yfir á sumardekkinn. Svolítið sein ég veit, en þannig erum við. Svo þegar við vorum búin að láta skipta um dekkin ákváðum við að rölta niðrá Austurvöll og fá okkur ís, svakalegur stemmari alltaf þar í góða veðrinu. Þar hittum við mann sem var búinn að vera á 5 daga fyllerí og þurfti endalaust að tala við okkur og tjá okkur hvað við værum fallegt par og spyrja okkur hvort að lífið væri ekki dásamlegt. Við gátum nú alveg verið sammála honum um það að lífið er dásamlegt.

Læt þetta nægja í bili.
P.S. Verður gaman að komast austur eftir næstu helgi og hitta þá sem maður hefur ekki hitt í meira en mánuð.  

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 11:08:10 / heisig

20. vikna sónar

Fórum í 20. vikna sónarinn á föstudaginn. Litla krílið okkar hreyfði sig aftur jafn mikið og í síðustu skoðun og ljósmóðirin hafði aftur orð á því hvað þetta væri fyrirferðarmikið fóstur :) Allt var eðlilegt eins og í síðasta sónar og krílið virðist vera mjög heilbrigt. Við fengum að vita að það er líklega lítil prinsessa á leiðinni. Það kom Heimi ekki á óvart því hann var alltaf viss um að þetta væri stelpa. Ég var líka komin á þá skoðun eftir að hafa dreymt bleika sokka, en áður hélt ég alltaf að þetta væri strákur :lol: Þegar ég tilkynnti mömmu og ömmu þetta voru þær ekkert hissa  því þær voru báðar vissar um að lítil stelpa væri á leiðinni, ömmu hafði  nefnilega dreymt fyrir því. Hana dreymdi líka að ég væri stelpa, finnur svona greinilega á sér :D. Þó þetta sé ekki nema 95% öruggt ætla ég samt að taka mark á þessu og kaupa eitthvað bleikt þegar ég klára skólann.

Sigrún sem á von á lítilli prinsessu 16. september

» 14 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 10:43:19 / heisig

Smá update

Gleðilegt sumar! Af okkur er allt gott að frétta. Ég er orðin svona líka eitur hress enda gengin 19. vikur. Í næstu viku fer ég svo í 20 vikna sónarinn en það skapar mikla spennu hjá okkur hjónum.
    Dagurinn í gær einkenndist af stressi en svo gleði undir lok hans. Ég var nefnilega að klára að skila fyrsta uppkasti af BA-ritgerðinni en maður er víst ekki sloppinn frá ritgerðum því nú taka tvær aðrar við.8| Það þýðir samt ekkert að slá slöku við nú er bara að spýta í lófanna og girða vel upp um sig og  klára dæmið. Það verður samt bara ljúft þegar þessu er öllu lokið og maður þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu nema að mæta í vinnuna.

Sigrún



» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 16:03:47 / heisig

Nóg að gera á kantinum

Bæði í ritgerðarsmíð og sýningu á íbúðinni sem við búum í. Sem betur fer kom samt ásættanlegt tilboð, á fimmtudaginn, sem að var samþykkt. Þannig að við þurfum ekki að vera með ókunnugt fólk inni á gafli hjá okkur aðra vikuna í röð. Ég hefði orðið biluð ef ég hefði þurft að fórna annarri viku í að sýna hana blessaða. En við munum sem sagt flytja héðan frá höfuðborginni og á Selfoss fyrstu vikuna í júlí, vá hvað það verður sweet. En jæja best að halda áfram að smíða ritgerð, á víst að skila fyrsta uppkasti eftir tvær vikur og er ekki komin með nema 1/3 af allri ritgerðinni:$.

Hafið það gott í páskafríinu, það er að segja ef þið fáið páskafrí.
Over and out, Sigrún

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 10:35:04 / heisig

Hönnunarkeppni.....

Véla og -iðnverkfræðinema sem undirritaður Heimir Rafn Bjarkason tók þátt í nú fyrr á árinu, verður nú sjónvarpað á skjái landsmanna þann 18. apríl kl. 20:55. Gríðarleg eftirvænting og almennur áhugi á þessu stórkostlega atburði gerir það að verkum að ég fann mig knúinn að tilkynna þetta hér, en svo mörg voru þau orð eins og þar stendur.....

kv
Heimir

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 22:12:18 / heisig

Tíminn líður hratt.....................

Á gervihnattaöld. Stigum einu skrefi lengra í tækninýjungum í dag. Fengum okkur rouder og afruglara frá símanum. Bara snilld að geta leigt sér spólu, án þess að fara út á leigu, bara verst að maður getur ekki keypt sér nammi líka í gegnum ruglarann, þá fyrst þætti mér þetta gargandi snilld.
Ekkert mikið annað að frétta af okkur, Heimir kemur heim flest kvöld upp úr miðnætti og ég er komin langt á eftir áætlun í skólanum vegna langvinnar gubbuveiki, bjóst ekki við að vera ælandi ennþá á 14. viku. En ég er nú samt ekki búin að gefa þetta frá mér, ég skal klára þessa ritgerð og útskrifast með stóra kúlu í lok júní :lol:

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 11:51:55 / heisig

Litli stuðboltinn okkar

Fórum í  morgun  í 11- 14  vikna sónar. Það leit bara allt ljómandi vel út og allt eðlilegt miðað við hvað ég er komin langt, ég er sem sagt komin 13 vikur :) Barnið var í þvílíku stuði og var ekkert á því að leyfa ljósmóðirinni að taka góðar myndir af sér. Það var á þvílíkri ferð allan tímann, hoppaði um legið á mér, eins og það fengi borgað fyrir það. Svo opnaði það muninn eins og það væri að borða og hreyfði fingurnar sínar. Ég held að þetta verði píanósnillingur, strax farið að æfa sig. Við vorum með bros allan hringinn og ljósmóðirinn skammaði mig fyrir að hlæja, ég bara gat ekki stillt mig.

Sigrún, gæti ekki verið ánægðari :lol:

» 21 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 19:39:33 / heisig

Einstök bílalukka???

Það er ekki hægt að segja að við hjónin höfum verið heppin í bílamálum í gegnum tíðina. Það stafar kannski af því að við höfum alla tíð átt hálfgerðar druslur, ja nema núna. Nú eigum við þenna fína Avensins. Þess vegna hélt ég að öll okkar bílaóheppni myndi heyra sögunni til, en samt kom babb í bátinn (bílinn) í dag . Þannig er mál með vexti að við vorum á leiðinni út í búð og Heimir setti lykilinn í svissinn, hvað haldiði, lykilinn brotnaði í svissinum. Jæja þá var bara eitt ráð, Heimir gerðist glæpon og tengdi framhjá og brunaði út í sveit, þar sem hann er núna að gera við garminn okkar. Mesti höfuðverkurinn við þetta allt saman er að nýr sviss kostar 35.000 kall sem  mér finnst persónulega algert ripp off. En svona er þetta bara, það er erfitt að vera stoltur bílaeigandi :)

Sigrún, líklega 35.000 krónum fátækari ;(

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5