Það er ekki hægt að segja að við hjónin höfum verið heppin í
bílamálum í gegnum tíðina. Það stafar kannski af því að við höfum
alla tíð átt hálfgerðar druslur, ja nema núna. Nú eigum við þenna
fína Avensins. Þess vegna hélt ég að öll okkar bílaóheppni myndi
heyra sögunni til, en samt kom babb í bátinn (bílinn) í dag .
Þannig er mál með vexti að við vorum á leiðinni út í búð og Heimir
setti lykilinn í svissinn, hvað haldiði, lykilinn brotnaði í
svissinum. Jæja þá var bara eitt ráð, Heimir gerðist glæpon og
tengdi framhjá og brunaði út í sveit, þar sem hann er núna að gera
við garminn okkar. Mesti höfuðverkurinn við þetta allt saman er að
nýr sviss kostar 35.000 kall sem mér finnst persónulega
algert ripp off. En svona er þetta bara, það er erfitt að vera
stoltur bílaeigandi
Sigrún, líklega 35.000 krónum fátækari ;(